Aðalfundur ÍKV og málþing um Kínaviðskipti

22.05.2017

Íslensk-kínverska viðskiptaráðið og atvinnurekendadeild Félags kvenna í atvinnulífinu efna til málþings um Kínaviðskipti þriðjudaginn 30. maí, kl. 15.30. Nokkrir frumkvöðlar ræða viðskipti við Kína á sviði framleiðslu, innflutnings og útflutnings.

Á undan málþinginu, kl. 15 verður haldinn aðalfundur Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins (ÍKV).

Dagskrá:

15.30   Ársæll Harðarson, formaður ÍKV: Málþingið opnað

15.35   Páll Þór Sigurjónsson og Sigurjón Pálsson, hönnuður og húsgagnasmiður:
Íslensk hönnun – gæðavara sótt til Kína 

16.00   Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri  GeoSilica:
Nægt hráefni fyrir framleiðslu og útflutning til Kína 

16.25   Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður:
Hönnun er framleiðsla

Að málþinginu loknu verður boðið upp á léttar veitingar.

Málþingið verður haldið í fundarsal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar. Skráning er hér neðar á síðunni. Vinsamlegast athugið að hægt er að skrá sig á báða viðburðina eða aðeins annan þeirra.

Nýjar fréttir

Innskráning