Afnám snakktollsins skilar sér til neytenda

27.01.2017

IMG_0800Afnám tolls á innflutt kartöflusnakk, sem tók gildi um áramótin, hefur nú þegar stuðlað að verulegri lækkun á verði ýmissa snakktegunda í verslunum. Ætla má þó að áhrifin séu ekki komin að fullu fram, enda eru talsverðar birgðir til af snakki sem flutt var inn á fullum tolli fyrir áramót.

Hér að neðan eru nokkur dæmi af verðbreytingum á kartöflusnakki í lágvöruverðsverslunum, samkvæmt upplýsingum sem FA hefur aflað sér.

  • Olw snakk, 175 gramma poki, lækkaði úr 245 krónum í 179 krónur eða um 27%. 
  • Lay’s snakk 175 gramma poki, lækkaði úr 290-295 í 225-226 krónur, eða 22-24%
  • Maarud snakk, 275 gramma poki, lækkaði úr 688-698 krónum í 398-399 krónur, 42-43%.
  • Pik Nik kartöflustrá, 113 gramma dós, lækkaði úr 339-340 krónum í 259-260 krónur, eða hér um bil 24%.  
  • Pik Nik kartöflustrá, 255 gramma dós, lækkaði úr 579-596 kr. í 439-440 kr., eða um 24-26%.

IMG_0796Snakktollurinn nam 59% á tollverð á innfluttu snakki. Hann var afnuminn með lögum frá Alþingi í árslok 2015, en gildistaka afnámsins beið í ár til að gefa innlendum snakkframleiðendum aðlögunartíma. Sigríður Andersen, núverandi dómsmálaráðherra, lagði fram tillöguna um afnám tollsins.

„Við fögnum því að þetta gamla baráttumál félagsins er gengið í gegn og tollalækkunin er þegar byrjuð að skila sér til neytenda,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. „Gera má ráð fyrir að hagur neytenda batni um vel á annað hundrað milljónir króna vegna þessarar tollaniðurfellingar.“

Nýjar fréttir

Innskráning