Auknu tollfrelsi í viðskiptum við ESB fagnað

17.09.2015

IMG_4609Fréttir af nýgerðu samkomulagi Íslands og Evrópusambandsins um gagnkvæma niðurfellingu og lækkun tolla á landbúnaðarvörum eru mikið fagnaðarefni að mati Félags atvinnurekenda. Félagið hefur um árabil barist fyrir ýmsum þeim breytingum sem boðaðar eru og þrýst á um þær bæði við íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

„Það er afar ánægjulegt að sjá að ýmislegt af því sem við höfum barist fyrir lengi sé að verða að veruleika, eins og niðurfelling tolla af unnum landbúnaðarvörum á borð við pitsur, pasta og bökunarvörur, þótt við söknum annarra tillagna okkar eins og að innflutt jógúrt fái að njóta tollfrelsis,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. „Það var líka löngu tímabært að lækka eða afleggja tolla á vörur sem sáralítið eða ekkert er framleitt af hér á landi eins og villibráð og frönskum kartöflum, en síðastnefnda varan ber 76% ofurtoll.“

Ólafur segir að erfitt sé að leggja mat á ávinning neytenda af samkomulaginu, þar sem enn vanti allar tölur um tollalækkanir og rýmkun tollfrjálsra innflutningskvóta. „Almennt talað kjósum við frekar almenna lækkun eða niðurfellingu tolla en skömmtunarkerfi á borð við tollkvótana. Að úthluta þeim með útboðum til hæstbjóðanda, eins og íslensk stjórnvöld hafa gert, vinnur í raun á móti markmiðinu með tollfrelsinu af því að innflytjendur neyðast til að velta útboðsgjaldinu út í verðlagið. Hins vegar er að sjálfsögðu jákvætt að tollkvótarnir stækki og í takt við aukna eftirspurn eftir innfluttum búvörum,“ segir Ólafur.

Hann segir engan vafa á að innflutningsverslunin muni skila tollalækkununum áfram í vasa neytenda. „Það er hörð samkeppni í matvælainnflutningi og alveg klárt að neytendur munu njóta ávaxta þessa samkomulags þegar það gengur í gildi,“ segir Ólafur.

Nýjar fréttir

Innskráning