Einhliða tollalækkun er engin fásinna

22.07.2015

Grein Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, í Fréttablaðinu 22. júlí 2015

Innfluttar skinkurYfirlýsingar Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, um að áformað sé að fella niður tolla á fötum og skóm um næstu áramót og tolla af öllum öðrum vörum nema matvöru fyrir árið 2017, marka mikil tímamót í íslenzkri verzlunarsögu.

Þessi áform stjórnvalda eru til marks um að þau átti sig á því hversu skaðlegir tollar og önnur höft á alþjóðaviðskiptum eru. Í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins um þessi áform segir réttilega: „Tollar hafa hamlandi áhrif á viðskipti og draga úr alþjóðaviðskiptum í heild sinni. Þegar tollur er lagður á innflutta vöru hækkar verðið sem innlendir neytendur þurfa að greiða fyrir vöruna sem aftur dregur úr eftirspurn eftir henni. Afnám tolla lækkar vöruverð til neytenda, bætir samkeppnishæfni seljanda og eykur skilvirkni á innlendum markaði.“

Þessar setningar eru teknar upp úr skýrslu starfshóps um endurskoðun tollskrár og þar er orðalagið raunar enn afdráttarlausara; starfshópurinn bendir á að í skjóli tollmúra geti innlendir framleiðendur hækkað verð umfram heimsmarkaðsverð og allir tapi; aukning tekna hins opinbera verði minni en tap neytenda og framleiðenda.

Mótsagnakennd stefna
Í ljósi þessarar afdráttarlausu afstöðu fjármálaráðuneytisins til skaðsemi tolla skýtur vissulega skökku við að fjármálaráðherrann hafi ekki einu sinni ámálgað að gera breytingar á matartollum. Alþjóðaviðskipti með matvöru lúta ekki öðrum hagfræðilegum lögmálum en viðskipti með allar aðrar vörur. Starfshópurinn, sem vann skýrsluna sem tillögur ráðherrans byggjast á, var hins vegar ekki einu sinni beðinn að skoða afnám matartolla.

Stefna ríkisstjórnarinnar í þessum málum er mótsagnakennd á ýmsa lund. Á sama tíma og fjármálaráðherrann boðaði afnám allra annarra tolla skrifaði landbúnaðarráðherrann upp á að tollar á mat, sem fluttur er inn á svokölluðum WTO-tollkvóta skyldu hækka um rúmlega 7% á milli ára!

Hreint engin fásinna
Mjög mikilvægt og fordæmisgefandi skref varðandi breytingar á matartollum er þó stigið með áformum fjármálaráðherra. Með þeim er viðurkennt að ekkert er því til fyrirstöðu að lækka tolla einhliða. Því hefur gjarnan verið haldið fram að það sé ekki hægt; Ísland verði að semja við önnur ríki og fá eitthvað í staðinn fyrir að lækka tolla á innflutningi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra uppástóð til dæmis á Búnaðarþingi í marz síðastliðnum að það væri „hrein fásinna“ að tala um að afnema tolla einhliða án þess að fá neitt á móti. Með því væri samningsstöðu Íslands kastað á glæ.

Nú hefur fjármálaráðherrann komizt að allt annarri niðurstöðu en forsætisráðherrann; það er í góðu lagi að afnema eða lækka tolla einhliða. Það hefur raunar verið gert áður hvað matvöru varðar, þegar tollar á innfluttu gróðurhúsagrænmeti voru felldir niður árið 2002. Afleiðing þeirrar tollalækkunar var veruleg verðlækkun og jafnframt aukin sala bæði innlends og erlends grænmetis. Innlend grænmetisframleiðsla hefur blómstrað síðan og unnið stórvirki í nýjungum og vöruþróun.

Nú hefur verið höggvið myndarlega í tollmúrana. Þess getur ekki verið langt að bíða að verndarmúrarnir sem reistir hafa verið um innlenda matvælaframleiðslu molni líka niður.

Grein Ólafs Stephensen á Vísi

Viðtal við Ólaf Stephensen á Stöð 2

Nýjar fréttir

Innskráning