Félagsfundur: Staða og horfur í efnahagsmálum

09.09.2015

IMG_2653Félag atvinnurekenda boðar til félagsfundar í húsnæði félagsins í Húsi verzlunarinnar kl. 8.30 – 10.00 miðvikudagsmorguninn 16. september. Efni fundarins er staða og horfur í efnahagsmálum á Íslandi. Hverjar eru horfurnar varðandi verðbólgu og vaxtastig? Hvaða áhrif mun gengisþróun hafa á verðlag og rekstrarstöðu fyrirtækja? Hvaða áhrif hafa nýgerðir kjarasamningar?

Frummælandi á fundinum er Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.

Morgunverður er í boði á fundinum. Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta á þennan fyrsta félagsfund vetrarins. Skráning er hér neðst á síðunni.

 

thorarinn - Copy (1) - Copy (1)Þórarinn G. Pétursson hefur verið aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands frá árinu 2009 og á ennfremur sæti í peningastefnunefnd hans.

Þórarinn var upphaflega ráðinn sem sérfræðingur á hagfræðisviði Seðlabankans 1994 og tók síðar við starfi staðgengils aðalhagfræðings og forstöðumanns rannsóknar- og spádeildar bankans í júní 2004.

Þórarinn lauk prófi í hagfræði (Cand. Oecon) frá Háskóla Íslands árið 1991, meistaraprófi í hagfræði frá Essexháskóla í Bretlandi árið 1992 og doktorsnámi (PhD.) frá háskólanum í Árósum í Danmörku árið 1998. Þórarinn hefur birt fjölda greina í innlendum og erlendum fræðiritum um peningastefnu og um aðra þætti hagfræði og efnahagsmála. Hann hefur jafnframt áralanga reynslu af kennslu í hagfræði á háskólastigi.

 

 

 

 Skráning á fundinn

Nýjar fréttir

Innskráning