Njarðarskjöldurinn afhentur 16. febrúar

09.02.2017
Félag atvinnurekenda tekur eins og undanfarin ár þátt í veitingu Njarðarskjaldarins, sem eru hvatningarverðlaun til ferðamannaverslana í miðborg Reykjavíkur. Að verðlaununum standa Reykjavíkurborg, Miðborgin okkar, FA, Samtök verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtök Íslands, Global Blue á Íslandi og Premier Tax Free Worldwide – Ísland.
Afhending Njarðarskjaldarins fer fram þann 16. febrúar 2017, kl. 17.30 í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, Tryggvagötu 17.

Dagskrá

Kynnir
– Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar
Ávarp
– Áshildur Bragadóttir, forstöðukona Höfuðborgarstofu
Gamanmál
– Ari Eldjárn
Afhending Njarðarskjaldar 2016 
– Kynning á þeim verslunum sem tilnefndar eru til verðlaunanna
– Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra afhendir verðlaunin

Léttar veitingar verða í boði.
Njarðarskjöldurinn er veittur árlega til verslana eða verslunareigenda fyrir framúrskarandi þjónustu og verslun við ferðamenn í Reykjavík og auknum ferskleika verslunarreksturs í borginni.

Nýjar fréttir

Innskráning