Þróun faraldursins kallar á framlengingu stuðningsúrræða

28.10.2021

Félag atvinnurekenda telur að þróun heimsfaraldurs kórónuveirunnar, bæði hér á landi og í ýmsum viðskiptalöndum Íslands, kalli á að stjórnvöld skoði þörfina á framlengingu ýmissa stuðningsúrræða fyrir fyrirtæki, sem að óbreyttu falla úr gildi á næstu vikum. Félagið hefur skrifað fjármálaráðherra erindi þessa efnis.

Í bréfi FA til Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra segir að þótt atvinnulífið hafi náð sér vel á strik með afléttingu samkomutakmarkana og minnkandi hömlum á landamærunum sýni þróun faraldursins, jafnt hér á landi og á heimsvísu, að óvissa um framhaldið sé áfram mikil. Sums staðar í nágranna- og markaðslöndum Íslands hafi samkomutakmarkanir verið hertar á ný og áfram megi búast við truflunum á ferðalögum. Markaðir ýmissa fyrirtækja, jafnt í þjónustu- og vöruútflutningi, séu því áfram í óvissu. „Fjölgun smita innanlands þýðir auknar líkur á að einangrun og sóttkví hafi áhrif á starfsemi fyrirtækja, jafnvel þótt bólusetningarhlutfall sé orðið hátt,“ segir í erindinu.

FA telur að ýmis stuðningsúrræði stjórnvalda hafi reynst fyrirtækjum, sem lent hafa í erfiðleikum vegna heimsfaraldursins, vel og hjálpað þeim að halda sér á floti þar til viðspyrna finnst á nýjan leik. Félagið bendir á að nú séu hins vegar aðeins nokkrar vikur í að ýmis þessara stuðningsúrræða renni sitt skeið og nefnir eftirfarandi dæmi:

  • Lagaákvæði um stuðning við fyrirtæki vegna launagreiðslna til starfsmanna í sóttkví taka til launagreiðslna sem inntar eru af hendi til og með 31. desember 2021.
  • Reglugerðarákvæði um átakið Hefjum störf, þar sem fyrirtæki geta ráðið starfsfólk með styrk frá Vinnumálastofnun, falla úr gildi um áramót.
  • Viðspyrnustyrkir gilda út nóvember næstkomandi, þ.e. í rúman mánuð til viðbótar.
  • Frestun gjalddaga staðgreiðslu launa og staðgreiðslu tryggingagjalds gildir eingöngu út árið.

„Að mati FA er nauðsynlegt að skoða heildstætt þau úrræði sem hafa reynzt vel til aðstoðar fyrirtækjum og horfast í augu við að óvissan um þróun faraldursins og nauðsynlegra sóttvarnaaðgerða er áfram mikil,“ segir í bréfinu, sem Ólafur Stephensen framkvæmastjóri undirritar. „Þótt almennt talað sé bjartara framundan er líklegt að fyrirtæki lendi áfram í tímabundnum vandræðum vegna faraldursins. Því er að mati FA nauðsynlegt að gera ráðstafanir til lengri tíma til að geta með sveigjanlegum hætti brugðizt við áhrifum faraldursins hverju sinni.“

Erindi FA til fjármálaráðuneytisins

Nýjar fréttir

Innskráning